Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Þetta er ég

  • Nafn: Anna Magnúsdóttir
  • Staður: Grindavík
  • Hjúskaparstaða: gift
  • Um mig: Ég er 38 ára og er gift Bjarka mínum frístundabónda og elska hann svakalega mikið. Við eigum 2 yndisleg börn. Brynjar Örn 14 ára og Elsu Rós 8 ára.

1.apríl

01. apríl 2009 klukkan 15:58

Já komiði sæl.

Bara kominn 1.apríl wow hvað tíminn líður hratt, á gervihnattaöld, hehehe ég er svo findin híhí.

Fyrir akkúrat 25 árum var snarvitlaust veður, rok og rigning. Ég fermdist þennan dag og var dagurinn æðislegur, man hann ennþá. Ég þurfti að sofa með rúllur í hárinu nóttina á undan og var það ekki gott hehe.
Mamma bakaði alveg helling að kökum, svo var nú örugglega eitthvað brauðmeti en man ekkert eftir því.  Gestirnir voru alltaf að segja við mig að ég ætti bara að taka við gjöfunum henda fólkinu út og segja svo "1apríl! hehe. Húmor í fólkinu hehe. 

Úti hurðin var tvöföld hjá okkur og opnaðist ytri hurðin út og hin inn. Vindurinn stóð beint upp á hurðina svo að pabbi og Jói heitinn(pabbi Hannesar og Halldórs) skiptust á að opna fyrir gestunum og passa að hurðin færi ekki af húsinu og stundum þurftu þeir báðir að vera. Það rigndi svo mikið að þeir voru báðir orðin rennandi blautir kallagreiin.
Húsið sem við áttum var svo lítið að ég skil ekki ennþá hvernig fókið komst fyrir inni. Ég er ekki viss hvað voru margir í veislunni en giska á um 60 manns. Held að húsið hafi verið 75-85 fermetrar.

Ég man að ég fékk 16þ krónur, 4 hringi, 2 eða 3 hálsmen, rúmföt, peysu, og svo fékk ég skókassa fullan af nammi, mmmmm hvað ég var glöð og borðaði svo  mikið að ég fékk í magann hehehehehehe. Ég á ennþá 2 hringi. Fyrir peningin keypti ég mér myndavél og er hún ennþá til.
Mamma og pabbi gáfu mér rúm, hillur og skápa í helrbergið og svo fékk ég líka frá þeim gráa Millet úlpu. Það var sko tískan þá þessar úlpur.

Yfir í allt annað. Í gær voru 15 ár frá því að við, ég og Bjarki, vissum að ég væri ólétt af Brynjari. Sumir fengu að vita það sama dag og aðrir daginn eftir, sem sagt 1.apríl og voru sumir sem trúðu mér ekki og hélt að þetta væri gabb hehehe en svo var ekki.


Og yfir í allt annað. Ég er búin að fara í 2 fermingar og verða þær ekki fleiri. Svo verður Róbert Óli skírður á sunnudaginn, mmmm borða borða og borða.
Talandi um að borða shitttttttt ég er orðin svo feit að ég fer að hætta að passa í vinnubuxurnar mínar, þær eru orðnar svolítið mikið þröngar. Viktin segir 87 kíló held ég fokking fokk. Ég ætla að fara að labba þegar snjórinn er farinn og reynda að taka mig á í matnum eftir páska.


Það voru nokkrir í vinnunni sem fengu uppsagnarbréf í gær. Manni stóð nú ekkert alveg á sama þegar ég sá hvað var í gangi en ég held minni vinnu.


Jæja ég held bara að þessi romsa sé orðin góð.
Það kom að því að ég bloggaði hahaha. En ég lofa ekki neinu um hvenær næsta blogg kemur.

Elska ykkur öll krúttin mín, og munið ekki fara ósátt í rúmið vakið heldur og rífist hehehehehehehhe

Anna out

Gleðilegt ár

20. janúar 2009 klukkan 17:21
...... og takk fyrir það gamla. Vonandi eru allir hressir og kátir á þessu nýja ári, það þýðir ekkert að leggjast í sorg og sút, bara bíta á jakslinn og taka lífinu með ró. Lítið að frétta hérna síðan síðast. Áttum æðisleg jól. Vorum heima um áramótin og fannst Brynjar það bara gaman. Við keyptum enga flugelda en afi gaf Brynjar og Elsu eitthvað smá sem Brynjar fékk að skjóta upp og Bjarki fylgdist grant með. Elsa Rós með sitt litla hjarta fór ekki út fyrir hússins dyr og beið bara eftir að þessi ósköp irðu búin, hún er svo skíthrædd við alla flugelda.

Á þessu nýja ári höfum við ekki gert neitt sem vert er að skrifa um. Við förum í vinnu, Bjarki í fjárhúsið og svo er hangið við tölvuna og sjónvarpið.
Við fengum bústaðinn hjá Sigurrós og Óla lánaðnn síðustu helgi. Ég og Bjarki fórum bara 2. Brynjar fékk að vera einn heima, í fyrsta skipti og gekk mjög vel, Elsa var aðra nóttina hjá vinkonu sinni og hina hjá ömmu og afa. Við Bjarki áttum mjög svo afslappaða helgi og nutum þess í botn að vera bara 2 í sveitinni. Takk æðislega fyrir lánið á húsinu elskurna mínar.

Ég hef bara ekki frá neinu að segja svo að ég kveð bara að sinni og veit ekkert hvernær ég blogga næst, ég á mér nefnilega ekkert líf hehehehehehe. Love you gæs.

24. desember 2008 klukkan 14:25

GLEÐILEG JÓL

GOTT OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

HAFIÐ ÞAÐ GOTT YFIR HÁTÍÐNA OG EKKI BORÐA YFIR YKKUR

NJÓTIÐ SAMVERU MEÐ VINUM OG ÆTTINGJUM OG MUNIÐ AÐ SAMVERAN ER ÞAÐ SEM SKIPTIR MÁLI UM ÞESSAR MUNDIR

ÉG ELSKA YKKUR ÖLL MJÖG MIKIÐ

FYRIRFRAM ÞAKKIR FYRIR OKKUR

GUÐ BLESSI YKKUR ÖLL OG OKKUR LÍKA

jólafílingur

07. desember 2008 klukkan 20:34
Jæja hvað segið þið nú gott. Allt fínt að frétta hérna. Húsið verður jólalegra með hverjum deginum sem líður. Ég er búin að vera að baka í allan dag. Byrjaði á piparkökum og fékk ég aðstoð hjá Elsu og Söru vinkonu hennar. Þær skáru út fígúrur með formum og svo fengu þær að mála þær á eftir. Svo gerði ég súkkulaðibitakökur og endaði svo á kókoshringjum. Húsið ilmar vel þessa stundina.

Það er eitthvað að hægjast um í vinnunni eða allavega í síðustu viku var bara dagvinna hjá okkur. En hvernig næsta vika verður kemur í ljós.

Ég er búin að kaupa allar jólagjafir nema fyrir börnin okkar.  Ég er langt komin með að skrifa jólakortin svo að það er bara rólegir tímar framundan hjá okkur.

Við ætlum að vera heima um áramótin að þessu sinni. Fínt að breyta til stundum.

Jæja man ekki meira að þessu sinni. Knús á línuna.

Já sælll

30. nóvember 2008 klukkan 22:58
Hæ elskurnar mínar. Allt gott að frétta hérna. Röddin mín er fundin. Hún kom bara heim sjálf svo að ég þurfti ekki að borga nein fundarlaun (ekki að það hafi verið nein í boði hehe). Sem sagt ég var raddlaus í 4 daga og var það ekki gaman. Ég hef í mesta lagi orðið rám í nokkra klukkutíma um æfina svo bara allt í einu í marga daga, vonandi kemur þetta ekki fyrir aftur.

Jæja þá er aðventan byrjuð og allt að lýsast upp hérna í bænum. En fólkið hérna við hliðan á okkur er ekki búið að kveikja á neinu. Ég veit reyndar ekkert hvort að þau halda jól eða þannig ég þekki þau ekki neitt.

Afmælisveislan hans Brynjars heppnaðist vel og vil ég þakka öllum fyrir komuna og fyrir drenginn. Eins og alltaf þá bakaði ég of mikið hehe en Bjarka finnst það bara gaman því að þá getur hann borðað afgangana (eins og hann megi eitthvað við því hehehehehe) djók elsku dúllan mín.

Já bóndinn minn er alltaf í fjárhúsunum þessa dagana. Blessaðar rollurnar komnar í hús og fer hann og klappar þeim og gefur á hverjum degi. Áhugann vantar ekki hjá dúllunni minni. Hann er reyndar að fara eignast fleirir kindur en þessa einu sem hann átti og er hann bara mjög spenntur fyrir því. Núna getur hann farið að halda upp á BÓNDADAGINN fyrir alvöru hehehehe smá djók.

Jæja best að fara  að sturta sig og koma sér sov í bólið.
Takk fyrir komuna allir í dag og þið hin sem komust ekki vonandi sé ég ykkur fljótlega.
Love you svoooooooooooooooooona mikið.

TAPAÐ FUNDIÐ......

23. nóvember 2008 klukkan 20:28
.... tapast hefur silkimjúk og falleg rödd. Hún strauk að heiman einhverntíma í nótt eða snemma í morgun. Hennar er sárt saknað. Finnandi vinsamlega skilið henni í hálsinn á mér svo að heimilisfólkið hætti að hlæja að mér.

Ég er búin að setja jólaljós í alla glugga hjá okkur. Það er alltaf jafn gaman að dúlla í þessu. Svo er það bara bakstur sem bíður mín í næstu viku og er það líka gaman.

Jæja dagvaktin er að fara byrja. Heyri í ykkur seinna.

HÓ HÓ HÓ love you all.

Góða kvöldið.....

20. nóvember 2008 klukkan 22:16
... Hvað segið þið þá gott í fréttum. Ég er öll að koma til og ætla ég að fara að vinna á morgun.
Ég er eiginlega bara búin að hanga á fésbókinni þessa 2 daga og finna fólk sem ég þekki eða þekkti hehe. Það er alveg ótrúlegt hvað það eru margi sem eru að nota þetta, bara fyndið. Ég á bara heila 53 vini hehe. Bjarki er búin að vera þarna inni í 2 sólahringa held ég og er hann kominn með fjörutíu og eitthvað held á og er stefnan hjá honum að ná mér.

Ég hef bara ekkert fleira að segja núna.
Góða nótt, Guð geymi þig, ég elska þig, sjáumst seinna.

Lasarus....

19. nóvember 2008 klukkan 11:55

Já núna er ég lasin Frown ekki gaman það. Hiti, beinverkir, verkir í öllu andlitinu og út í eyrun og hálsbólga, grát Cry.

Annars er fínt að frétta hérna. Við erum búin að kveikja á útiseríunni, gerðum það á sunnudaginn, og er þetta allt annað líf að sjá húsið. Við vorum sko ekki þau fyrstu hérna í bænum sem kveiktum og svo kom helling á eftir okkur. Núna langar mig að setja ljós í gluggana mína líka en er samt að hugsa um að halda í mér allavega fram að helgi.

Krakkarnir voru á sundmóti síðast laugardag. Þetta var fyrsta mótið hennar Elsu. Ég sá reyndar bara eitt sund hjá henni, kom svo seint var að vinna, og held ég að henni hafi bara gengið þokkalega. Hún fékk þátttökuverðlaun rosalega stolt stúlka. Brynjar keppti í 6 eða 7 greinum, minnið að svíkja mig. Hann var á palli í öllum greinum. 1 silfur og restin gull. Þetta var í síðast skipti sem hann má keppa á þessu móti því eftir áramót er hann orðinn of gamall. En hann er allaf duglegur þessi elska.

Núna styttist í að Brynjar verði 14 ára og langar hann að ég verði með kaffi og ætla ég að hafa það sunnudaginn 30 nóv. Ég sendi öllum sms þegar nær dregur.

Fórum í kaffi til Dísu á sunnudaginn, alltaf gaman að koma til ykkar. Enn og aftur til hamingju Dísa mín.

Jæja man ekki eftir fleiru dúllurnar mínar. Elska ykkur öll rosa mikið. Wink

Farðu úr bænum ........ eigum við að ræða þetta eitthvað hehehe

13. nóvember 2008 klukkan 20:22

Hellú.
Hvað segið þig gott í dag.
Allt gott að frétta hérna. Bara svo að þið vitið að þá eru síðustu 3 færslur eftir Bjarka en ekki mig. Já hann er farinn að fikta aðeins í þessu svo að kannski fer bara að styttast í að hann skrifi eitthvað af viti hérna hver veit.
Ég fór á staffadjamm 1 nóvember og skemmti mér rosalega vel. Gerða gisti hjá okkur þessa helgi og var gaman að hafa hana eins og alltaf. Sigurrós og Óli kíktu hérna á sunnudeginum og er alltaf jafn gaman að fá þau í heimsókn.

síðustu helgi var Brynjar að keppa í sundi og synti hann 2 greinar. Hann bætti sig vel í annari greininni. Næstu helgi eru bæði börnin mín að keppa í sundi og er þetta í fyrsta skipti sem Elsa keppir.

Ekki mikið að gerast hérna annars bara þetta sama og venjulega.

Fór í kef í gær. Keypti úlpu handa Brynjari og svo kíktum við til mömmu. Svo fór ég líka í Kaskó og keypti kalkúninn fyrir jóladag. Þá er ég búin að kaupa matinn fyrir aðfangadag og jóladag. Nei reyndar ekki alveg það á eftir að kaupa hangiketið.
Mikið rosalega hlakkar mig til að kveikja á jólaljósunum. Ég kveikti á útiseríunni um daginn en það kviknaði ekki á henni allri svo að Bjarki slökkti aftur og ætla ég að kveikja strax og búið verður að laga það.
Ég er búin að kaupa 10 jólagjafir og er ég svona nokkurnveginn búin að ákveða restina.

Jæja man ekki eftir meiru í bili. Endilega kvittið fyrir innlitinu svo að Bjarki tapi sér ekki hehe og svo er aldrei að vita nema að hann setji inn hérna einhverja stafi ef hann dettur í gírinn.

Ég setti inn nokkrar myndir endilega kíkið.

Elska ykkur öll svakalega mikið krúttin mín.

P.S. Til hamingju með afmælið um daginn Dísa mín. Og svo styttist í afmælið hennar Gerðu sperðu 16.nóv.

Koma svo

12. nóvember 2008 klukkan 21:00
það hljóta að vera einhverjir fleiri sem lesa þetta þetta.common kvitta